16.04.2012 23:21Nýtt gotHvolpar Fæddir eru hvolpar undan Hrísdals Engla Make me Smile (Tinna) og Leirdals danske Majbritt (Konný). Hvolparnir, sem fæddust 10. mars sl., skiptast í 3 rakka og 2 tíkur (2 orange roan rakkar, 1 blue roan rakki, 1 blue roan tík og 1 orange roan tík). Rakkarnir hafa ekki fengið heimili ennþá og þeim sem kynnu að hafa áhuga er bent á að hafa samband við Auði Auðunsdóttur í síma 660-3181, eða e-mail: audura@husa.is - - - - - Einnig eru til sölu og tilbúnir til afhendingar tveir hvolpar hjá Bjarkeyjar ræktun, orange roan rakki og blue roan tík. Áhugasamir hafi samband við Ingu Björk Gunnarsdóttur í síma 487-8070 / 895-5108, eða e-mail: sperdill@live.com 21.03.2012 10:29Frá HRFÍSpennandi fyrirlestur fyrir áhugafólk um ræktun Fyrirlestur um hvolpa-/kettlingadauða og ófrjósemi -á vegum Royal Canin/Dýrheima S/F Fyrirlesturinn verður haldinn 11. apríl n.k. á Nordica Hilton. Fyrirlesarar eru Dr. Alain Fontbonne og Dr. Philippe Pierson frá Frakklandi. Skráning fer fram á hrfi@hrfi.is, aðgangseyrir er 500 kr. - vinsamlegast millifærið inn á reikning HRFÍ, 515-26-707729 Kt. 680481-0249. Síðasti skráningadagur er miðvikudaginn 4. apríl. Athugið að takmarkaður fjöldi þátttakenda kemst á fyrirlesturinn. Ræktendur og stjórnir ræktunardeilda eru hvattar til að skrá sig. Dagskrá: Kl. 18:30 Inngangur - Velkomin/n Kl. 19:00 Hvolpa-/kettlingadauði - Dr. Alain Fontbonne Kl. 19:45 Kaffihlé Kl. 20:00 Ófrjósemi - Dr. Alain Fontbonne Kl. 20:45 Kaffihlé Kl. 21:00 Mikilvægi þess að gefa hvolpa-/kettlingafæði - Dr. Philippe Pierson Alain Fontbonne útskrifaðist frá dýralæknaháskólanum Í Nantes árið 1985. Næstu tvö árin lagði hann stund á lyflækningar hunda og katta við dýralæknaháskólann í Alfort utan Parísar og árið 1993 varð hann lektor við dýralæknaskólann í Lyon þar sem hann fékkst við æxlunarfræði og sæðingar hunda og katta. Árið 2000 var hann skipaður aðstoðarprófessor við dýralæknaskólann í Alfort og er í dag forstöðumaður æxlunardeildar hans. Alain hefur skrifað margar vísindagreinar í sínu fagi bæði fyrir franska dýralækna og ræktendur og hefur verið í fararbroddi á sínu sviði í Evrópu, m.a. verið formaður samtaka evrópskra smádýralækna í æxlunarfræði (EVSSAR). Áhugasvið Alans er ófrjósemi hunda og katta, sæðingar og rannsóknir á þroska og frjósemi á eggfrumum hunda. Alain Fontbonne hefur haldið fyrirlestra víðs vegar um heim, m.a.í Danmörku,Swiss, Bretlandi, Spáni, Portúgal, Ítalíu, Brazilíu, Póllandi, Ungverjalandi, Tékklandi og í Bandaríkjunum. og er einnig fulltrúi Evrópska háskólans í æxlunarfræði dýra. (ECAR). Alain er heillaður af íslenska fjárhundinum en þess má geta að í síðustu heimsókn sinni til Íslands árið 2008 eignaðist hann íslenska fjárhundinn Huginn sem hann tók með sér heim. 14.03.2012 13:45Mörg got í gangiÓvenju mikið er af gotum í tegundinni okkar núna á fyrri hluta ársins, sem er auðvitað gleðilegt, vegna þess að eitt af markmiðum okkar í deildinni er að reyna að sýna sem flestum fram á hversu frábær hundur enskur cocker spaniel er og stuðla að frekari útbreiðslu þessarar yndislegu tegundar hér á landi.
Hjá Siggu Jónu ræktun eru hvolpar undan Bjarkeyjar Take a Chance on Me (Karra) og Allert's Custom Made (Nury), allir 7 hvolparnir eru blue roan, 3 tíkur og 4 rakkar.
Hjá Dagstjörnu ræktun eru einlitir hvolpar undan Hrísdals Engla Make me Smile (Tinna) og Fagralands Sumar Dögg (Rökkvu), 1 black&tan rakki, 2 black&tan tíkur og 2 svartar tíkur.
Hjá Bjarkeyjar ræktun eru fæddir hvolpar undan ISShCh Classicway Cambridge Blue (Freddie) og ISShCh Bjarkeyjar Melissu, 1 orange roan rakki og 2 blue roan tíkur.
Nánari upplýsingar er að finna undir tenglinum Hvolpalisti hér til hliðar og ef þú hefur áhuga á að vita meira um tegundina eða hvolpana þá er um að gera að hafa samband við ræktendurna eða tengilið tegundarinnar, sem alltaf er til í að spjalla um cockerinn. 20.02.2012 12:10Væntanlegt gotVæntanlegt er á næstu dögum got undan: Hrísdals Engla Make me Smile (Tinna) - blue roan og Fagralands Sumar Dögg (Rökkvu) - svört Tinni og Rökkva hafa bæði verið sýnd á sýningum HRFÍ með góðum árangri. Tinni varð BIS-3 hvolpur í eldri flokki og hefur tvisvar orðið BR-3, en hann er 22 mánaða gamall. Væntanlegir litir í þessu goti eru einlitur svartur og rauður, jafnvel black&tan. Einnig er möguleiki á mislitum hvolpum í öllum litum þótt tölfræðin segi að líklegra sé að hvolparnir verði einlitir. 28.01.2012 23:35Nýtt gotFæddir hvolpar! Fæddir eru 7 hvolpar hjá Siggu Jónu ræktun. Hvolparnir, sem komu í heiminn 26. janúar sl., eru undan Bjarkeyjar Take a Chance on Me (Karra) og Allert's Custom Made (Nury). Hvolparnir eru allir blue roan og komu 4 rakkar og 3 tíkur. Þeir sem hafa áhuga á þessu goti hafi samband við Sigurbjörgu Jónu Traustadóttur í síma 690-6004 eða e-mail sjt1958@live.com Nury með krílin sín 16.01.2012 19:26Væntanlegt gotGot í lok janúar Væntanlegt er got hjá Siggu Jónu ræktun undan: Bjarkeyjar Take a Chance on Me (Karra) og Allert's Custom Made (Nury) Bæði Karri og Nury hafa staðið sig vel á sýningum. Karri hefur hlotið 4 íslensk meistarastig og 3 CACIB og varð hann stigahæsti cocker á Íslandi árið 2010. Nury hefur einnig gengið vel á sýningum og þess má geta að gotsystir hennar, SE(u)CH Allert's Corona, varð BOB á Nordic Winner sýningunni í Stokkhólmi í desember sl. Nánari upplýsingar um gotið gefur Sigurbjörg Jóna Traustadóttir í síma 690-6004 eða e-mail: sjt1958@live.com
|
Vafraðu umEldra efni
Tenglar
Enskur Cocker á Íslandi Tölvupóstfang: enskurcockerspaniel@gmail.comUm: Tengiliður fyrir tegundina er Guðrún Margrét Baldursdóttir, sími 694-8087, e-mail gbaldursdottir@hotmail.com |